Örvitinn

"Svikarar við þjóðerni okkar"

Hefðu Evrópumenn sagt nei við fósturdeyðingum frá því um 1965, hefði það gert gæfumuninn til að fólksfjölgun hér hefði verið með svo jákvæðu móti, að lítil þörf hefði verið á innflytjendum. Þeir taki til sín sneiðina, sem eiga hana – svikarar við þjóðerni okkar og samfélagsverfuleika [sic] á þeirri öld, sem nýhafin er, en umfram allt við þá milljónatugi ófæddra barna, sem 'fórnað' hefur verið og enn er haldið áfram að senda í dauðann, sjálfum okkur til bölvunar. # (feitletrun mín - MÁ)

Jón Valur Jensson Morgunblaðsbloggari útskýrir orsök innflytjendavandamála í Evrópu.

kristni
Athugasemdir

Óli Gneisti - 19/02/08 11:42 #

Persónulega reyni ég að svíkja þjóðerni mitt að minnsta kosti einu sinni á dag.

Kalli - 19/02/08 16:01 #

Er JVJ orðinn þræll DNA spírals?

LegoPanda - 19/02/08 21:18 #

Það er líka augljóst að lang besta lausnin hefði verið að banna fóstureyðingar, svo konur geti ekki haft val milli þess að klára skólagöngu eða fjölga mannkyninu og fórnarlömb nauðgana séu örugglega minnt á þannig hræðilega atburði hvern dag lífs þeirra ef barn verður til úr nauðguninni.

Ég myndi mun frekar velja þá leið en að hvetja til barneigna með skattafríðindum barnmargra eða þess háttar.

Birta - 23/02/08 21:38 #

Ég hló upphátt að athugasemd Óla Gneista!