Örvitinn

Kia umboðið og Askja

Ég geri nóg af því að kvabba hér á þessari síðu en minna af því að hrósa (þetta er fyrsta færsla í þeim flokki). Ég verð að hrósa Öskju fyrir þjónustu við eigendur Kia bíla. Ég hef þurft að leita til þeirra útaf veseni undanfarið og þar hefur verið leyst úr mínum málum fljótt og vel. Áðan kom ég við og þeir löguðu annað bílbeltið afturí meðan ég beið.

Ég vann eitt sumar á verkstæðismóttöku og fannst það agalegt. Viðmót viðskiptavina var ansi oft frekar neikvætt, stundum skiljanlega. Mér hef því mikla samúð með þeim sem sinna því starfi og vert að taka það fram þegar vel er gert.

Askja og Kia umboðið fá hrós dagsins.

hrós
Athugasemdir