Bah

Ég hef ekki úthald í að skrifa tíu bloggfærslur á dag til að halda vinsældum, mig skortir líka hugmyndaflug til að skrifa grípandi fyrirsagnir. Eftir keppnisdag á þriðjudag gafst ég upp. Verð að sætta mig við að detta af listanum :-)

Ég vildi að ég væri í London. Áróra Ósk er þar með Gunnu ömmu sinni, þær fóru út í morgun. Til að bæla niður öfundina minni ég mig reglulega á að það er rétt rúmur mánuður þar til ég verð í Berlín. Þar verður sko flakkað milli klámklúbba og pútnahúsa - usss.

07.03.2008 13:50 dagbók
Athugasemdir

Óli Gneisti - 07/03/08 14:24 #

Uss, aumingjaskapur. Maður verður bara að vinna að þessu, vera frekur og duglegur.

Matti - 07/03/08 14:28 #

Já ég veit - en ég vildi líka sjá hvað ég væri lengi að detta af listanum ef ég myndi ekki skrifa neitt. Það tók um 36klst :-)

Óli Gneisti - 07/03/08 15:17 #

Síðan komst Stebbi bastarður yfir mig. Ussuss. Ljótt trikk að nota nasisti í fyrirsögn.

Matti - 07/03/08 15:21 #

lol, vertu snöggur að nota: "Klámmyndband með Britney og Paris".




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com