Ég vaknaði klukkan hálf tíu en er enn í rúminu. Teygði mig í fjarstýringuna af rúminu og reisti bakið - hef svo vafrað um netið síðan.
Það er kannski að verða tímabært að koma sér á fætur.
Á meðan ég sit hérna og bæti við upphaldsorði leiðbeinanda míns í aðra hverja setningu í ritgerðinni. Þó.
Mér tókst þó að fara á fætur, langaði svo hrikalega í beyglu með osti og marmelaði. Fletti líka blöðunum.
Er kominn aftur upp í rúm!
Ég þarf greinilega að fá mér fartölvu svo ég geti vafrað í rúminu :)
|
www.flickr.com
|