Örvitinn

Píla dagsins

Ég, Jón Magnús og Kolli spiluðum fimm leiki í dag. Ég vann alla.

Það sem er skemmtilegt við þetta er að Jón Magnús og Kolli samgleðjast mér alltaf þegar ég vinn. Það er mikið um húrrahróp og fagnaðarópin heyrast um allt hús. Svo koma þeir í básinn minn og hrósa mér sérstaklega fyrir frammistöðuna.

dagbók
Athugasemdir

Jón Magnús - 01/04/08 17:05 #

Það er búið að sprengja dekkin á bílnum þínum...

Matti - 01/04/08 17:08 #

Með pílum? :-)

Jón Magnús - 01/04/08 17:14 #

Ég gruna að Kolli hafi farið "út að reykja" áðan og tekið með sér sveðjuna hans Arnars...

Matti - 01/04/08 17:31 #

Það er ágreiningur um það hvort ég er verri tapari eða sigurvegari. Ég held það megi varla greina á milli.

Jón Magnús - 02/04/08 13:53 #

Ég og Kolli sönnuðum í dag að þetta var bara heppni í gær! Vííí - óle óle óle óle....

Matti - 02/04/08 13:55 #

Það skal tekið fram að píla dagsins í dag var ógild vegna tæknigalla.

Svo eruð þið líka asnar.

Komið hefur í ljós að ég er verri tapari heldur en sigurverari.