Grilltíðin hafin

Það þarf að færa til bókar að grilltíðin er hafin. Á föstudag grillaði ég svínahnakka sem ég keypti marineraða í Hagkaup. Grillaði líka bakaðar kartöflur, maísstöngla og pylsur. Í gærkvöldi grilluðum við afganga og hamborgara.

Grillið kom ekkert alltof vel undan vetri. Ég þreif það á föstudag en þarf að gera betur.

Veður dagsins er ekki í takti við grilltíðina, allt á kafi í snjó.

Grilltíðin í ár hefst nokkuð síðar en á síðasta ári.

13.04.2008 11:45 matur
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com