Miðvikudagar eru ágætir

Miðvikudagar eru ágætir.

Fótbolti í hádeginu, sem er ágætt. Reyndar drullutapaði ég í dag, en ágætt var það samt.

Ég hætti alltaf snemma í vinnunni á miðvikudögum. Það er líka ágætt. Sæki stelpurnar og skutla Ingu Maríu í fimleika hjá Gerplu. Sest inn í sal í smá stund og glápi á afturendann á kennurunum. Nei, ég meinti: Sit í smá stund og horfi á Ingu Maríu æfa sig.

Ég og Kolla kíkjum stundum í Smáralind meðan Inga María er á æfingu. Röltum í bókabúð og flettum blöðum eða bókum. Ég planta mér fyrir framan tímaritarekkann og Kolla sest í bókabílinn. Ég fletti ljósmyndagræjublöðum. Það er klámið mitt.

Í dag skutla ég Kollu í afmæli í Smáralind, þrefalt bekkjaafmæli. Fimm hundruð krónur í umslag handa hverjum gemling, höfum ekki tíma til að versla gjafir.

Skýst svo í póstafgreiðsluna í Nettó í Mjódd og sæki bókapakka frá Amazon. Pakkinn kom í síðustu viku, ég sá miðann rétt rúmlega sex á föstudag. Vann frameftir á mánudag og fór á sýningu í gær. Nú skulu bækur sóttar. Áróra fær sínar bækur samt ekki fyrr en á morgun, eftir samræmda prófið í stærðfræði.

Þegar ég sæki Ingu Maríu í fimleikana horfi ég stundum á síðustu mínútur tímans. Kolla fer inn í klefa með Ingu Maríu og ég sest við gosbrunninn við afgreiðsluna. Skelli ipod í gang og hlusta á tónlist meðan ég virði fyrir mér mannlífið.

Ég er með alltof mikið af bókum sem ég á eftir að klára að lesa. Næsta skref er að lesa eins og heila bók. Það væri ágætur árangur.

Jamm, þetta er allt saman alveg ágætt.

07.05.2008 15:35 dagbók
Athugasemdir

Óli Gneisti - 07/05/08 16:03 #

Hvenær ætli orðaforði Íslendinga breytist almennt þannig að þeir segi ekki lengur "þetta er biblían mín" heldur "þetta er klámið mitt" ?

Sirrý - 07/05/08 20:06 #

Það er líka tilvalið að skella sér í sund á meðan og synda nokkrar ferðir eða virða fyrir sér mannlífið í heitapottinum Salalauginn er fín í það.

Matti - 08/05/08 11:09 #

Sundið myndi ekki ganga upp. Það yrði nefnilega mikil sorg ef Inga María kæmist að því að ég og Kolla hefðum skellt okkur í sund meðan hún var á æfingu.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com