Ég er miður mín, brotinn maðurinn, ónýt sál. Hvað get ég sagt á þessum sorgardegi.
Einn virtasti álitsgjafi landsins ákvað að birta ekki athugasemd mína á bloggsíðu sinni. Ég er ekki nógu góður fyrir hann :-(
Ég gerði litla athugasemd við færslu hans um dýflissu Guðmundar í Byrginu. Athugasemdin var einföld, ég spurði Stefán Friðrik einfaldlega hverju hann bætti við fréttina sem hann bloggaði við.
Stefán Friðrik, fyrirgefðu mér. Taktu mig í sátt, gerðu það. Gerðu það. Fjandakornið maður, ég er hægrisinnaður og alinn upp í Garðabænum, er ég þá ekki í klíkunni. Stefán, hvernig getur þú gert mér þetta bloggbróðir. Stefááááááááán.
Bíddu, bíddu... ertu að segja að moggabloggtardar eigi að skapa innihald? Ekki bara endursegja fréttir og bæta við þær réttlátri reiði, hneykslun eða kröfu um að tekið sé á málinu?
Ég hlýt að hafa misskilið tardabloggið.
Hvers lags dónaskapur er þetta eiginlega Matti?
Að dylgja um að einn af kóngun og helstu kanónum moggabloggsins sé með innihaldsrýrar færslur!
Auðvitað á hann ekki að birta þessa athugasemd þína, og sem meira er, hann ætti bara að banna þig algjörlega :)
mwahahaha :D
ekki að ég skilji hvers vegna fólk er að fara inn á síðuna hans...
Þótt þessi slóð vísi á moggablogg á hún heima hérna. http://www.hognason.blog.is/blog/hognason/entry/531997/
Jú, tvennu hefur Stebbi við bætt:
Hvorttveggja kemur mjög á óvart og umdeildar skoðanir Stebba hafa hrist rækilega upp í samtímanum.
|
www.flickr.com
|