Örvitinn

Ég ætti að skammast mín

Samkvæmt hlustanda Bylgjunnar ætti ég að skammast mín fyrir málflutning minn vegna þess að Vantrú eru fámenn samtök.

Það var nefnilega það :-)

dagbók
Athugasemdir

Finnur - 19/05/08 10:15 #

Ég hlustaði á þetta á leið í vinnuna og keyrði næstum á ljósastaur af pirringi út í þennan hellisbúa.

Freyr - 19/05/08 11:16 #

Ég einmitt hlustaði á þetta í morgun líka, mér fannst þú standa þig vel. Ef ég hefði verið í samræðum við þennan mann sem hringdi inn og vildi ekki kynna sér ykkar málstað og hélt því fram að trúleysingjar væru 80-90 á öllu landinu, þá hefði ég engan veginn náð að halda ró minni eins og þú gerðir. :-)

En maðurinn gékk greinilega svo langt yfir strikið að jafnvel þáttastjórnendur, sem fara lítið leynt með það að styðja ekki málstað trúleysingja, þurftu að stoppa hann af og vera ósammála.

Eva - 19/05/08 23:00 #

Boðorð númer eitt: Þú skalt ekki hafa óvinsælar skoðanir.