Örvitinn

Nennti ekki að glápa

Inga María, Kolla og GyðaÉg keypti McDonalds handa stelpunum á heimleiðinni, borðaði sjálfur núðlur í vinnunni. Stelpurnar gláptu á Eurovision í sjónvarpsstofunni. Ég skellti í þurrkara og flúði svo upp í svefnherbergi, nenni ekki að horfa á söngvakeppnina. Treysti gummajoh og held með frökkum.

Eignaðist tvö kíló af úrvalshumar í dag en gleymdi honum í ísskápnum í vinnunni. Verð að muna að taka hann með heim á morgun. Ætli ég eldi hann ekki bara á hefðbundinn máta á næstu dögum.

Ég hef verið að fletta í kvæðasafni Steins Steinars fyrir svefninn. Þar eru mörg ljóð sem ég þekki en svo önnur sem ég man ekki eftir að hafa lesið áður. Um þessar mundir finnst mér Vöggugjöf ansi magnað.

dagbók