Ég er að hlusta á nýju Sigurrósar plötuna. Mikið er ég ánægður með þessa þróun í útgáfu tónlistar. Ég vil hlusta á diska áður en ég tek ákvörðun um að kaupa þá. Af hverju ætti þetta að vera happdrætti?
Þegar ég bloggaði um hveiti í gær vonaðist ég náttúrulega til að Nanna myndi kommenta, hún gerði gott betur og skrifaði magnaða brauðgerðarfærslu. Meira þarf maður varla að vita. Internetið virkar!
Ég hjólaði ekki í dag þar sem ég ætla í fótbolta í hádeginu. Ætla líka snemma heim til að horfa á Spánverjar sigra Rússland á EM.