Örvitinn

Tónleikar með Benna Hemm Hemm

Benni Hemm HemmBenni Hemm Hemm hélt tónleika bak við verslunina Útúrdúr á Njálsgötu 14 klukkan fimm í dag í tilefni þess að nýr diskur frá honum kemur út í dag.

Þetta var óskaplega kósý í sólinni. Boðið upp á hvítvín og bjór og svo sat fólk í grasinu og hlustaði á tónlistina.

Guðmundur Ari var hress, er farinn að rölta um og rabba við fólk, þó fólk sé reyndar ekki nógu duglegt að skilja hann. Ég er viss um að hann verður farinn að dútla við tónlist ansi snemma.

Ég tók nokkrar myndir og skellti í júnísarpinn.

tónlist