Geðheilsu bjargað - Riise til Roma
Góðar fréttir bæta geð. Riise er farinn til Roma.
Síðustu tvo vetur hefur verið óbærilegt að fylgjast með Riise. Vandamálið er að Riise hefur staðið í stað á sama tíma og Liverpool liðið hefur batnað töluvert (þó sumir neiti að sjá það). Riise hentaði ágætlega í stórkallabolta og baráttu en á ekki heima í spilandi liði.
En hann má eiga það að hann skoraði mörg glæsileg mörk, þó þau hafi verið fá síðustu tvö tímabil. Skoraði hann eitthvað síðasta vetur?
Athugasemdir
Magnús - 18/06/08 22:04 #
Þetta kallar á einn dökkan fyrir svefninn.
Arnold - 18/06/08 22:32 #
Skoraði hann ekki sjálfsmark á móti stjélsí í undanúrslitum meistaradeildarinnar? Eða var það einhver annar og í einhverjum allt öðrum leik?