Örvitinn

Úr blíðunni í borgina

Við erum komin í bæinn úr bústað. Stelpurnar spila á fótboltamóti næstu daga og því erum við hér. Yfirgáfum sólina í Borgarfirði klukkan þrjú, þegar við komum að Hvalfjarðargöngum blasti drunginn við - það lá við að ég sneri til baka.

Síðustu daga hefur verið óskaplega gott veður í Borgarfirðinum, næstum því of gott - maður þurfti að flýja í skuggann og ég náði að brenna aðeins á öxlum.

Við ákváðum að grilla ekki í kvöld, búin að fá nóg af því. Ég held ég fái mér ekki heldur einn bjór.

Hér eru fáeinar myndir.

dagbók