Örvitinn

Stormur

Ég var að horfa á nokkuð áhugaverða bíómynd á Rúv seint í gærkvöldi þegar útsendingin rofnaði. Þá var ekkert annað í stöðunni en að rölta út og taka myndir. Hvernig endaði þessi mynd annars?

Storm

Ég fór upp á hól með þrífótinn og smellti af fullt af myndum. Því miður kom ekkert sérlega áhugavert teikning í skýin þó það væri dálítil dramatík í gangi. Náði engri sem ég er mjög ánægður með en ég fór út að taka myndir sem er jákvætt.

Veðurspá næstu daga er hundleiðinleg og nú er hellidemba. Við ætlum því að koma okkur heim. Betra að hanga heima en í bústað í rigningu.

Ég sendi tvær myndir í sitthvora keppnina á ljósmyndakeppni.is. Hef ekki sent inn mynd í langan tíma. Eins og svo oft áður fæ ég lágar einkunnir og engar athugasemdir. Verð dálítið leiður inni í mér :-)

dagbók