Örvitinn

Flúðum regn og vosbúð

Æi, eitthvað fugladraslVið brunuðum semsagt heim í dag. Skoðuðum veðurspána og ákváðum að betra væri að hanga heim í hellidembu heldur en í bústað.

Þetta var því afskaplega stutt ferðalag.

Komum með meiri magn af mat og víni úr bústað heldur en við fórum með uppeftir. Það verður seint leikið eftir. Humarinn sem átti að enda á grillinu í gærkvöldi fer í risotto í staðin. Ég er samt varla að nenna að elda.

Eins og ég sagði í síðustu færslu gengur myndum mínum ekki beinlínis vel á ljósmyndakeppni.is. Af því tilefni kemur fuglamynd, alls óskyld þeirri sem þar keppir. Þessi er ekki einu sinni í fókus.

dagbók