Örvitinn

Vaknaði með andfælum

Mikið óskaplega er vont að vakna með andfælum.

Í nótt dreymdi mig að ég hefði vaknað og rölt niður á miðhæð þar sem ég gekk í flasið á boðflennum og lenti í slagsmálum. Byrjaði að öskra á Gyðu að hringja í lögregluna en þau hróp héldu sig ekki í draumheimum og ég vakti Gyðu og sjálfan mig með látunum.

Var heillengi að sofna aftur.

Mér leiðast draumar þar sem mig dreymir að ég vakni, hvaða rugl er það?

dagbók