Örvitinn

Pabbavika

Gyða er mætt aftur til vinnu eftir sumarfrí og því verð ég einn í kotinu með Kollu og Ingu Maríu þessa viku. Áróra Ósk er í fríi með pabba sínum.

Eitthvað verðum við að gera feðginin, ekki getum við hangið inni alla vikuna (tæknilega séð gætum við það alveg). Það eina sem stelpurnar hafa nefnt er að fara í bíó, ég kíki eflaust með þær á Wall-e seinnipart vikunnar.

Nú þurfum við að finna okkur eitthvað að gera í dag. Annars eru þær að dunda sér saman í tölvunni í sjónvarpsstofunni þessa stundina. Best að slaka á meðan þær eru góðar en ég þarf að setja saman viðbragðsáætlun því friðurinn mun ekki endast út daginn.

dagbók