Örvitinn

Stofan minnkar

Fengum sófastólana okkar í dag, en það er nokkuð liðið frá því við fengum sófann. Þetta var eftir áætlun, okkur lá ekkert á. Allt er þetta frá Bóhemía, ég mæli með því að þið tékkið á þeirri búð. Það er heljar útsala í gangi þessa dagana.

Það er ekki hægt að segja annað en að stofan hefur minnkað dálítið við þessa viðbót. Við ætlum ekki að losa okkur strax við gömlu grænu sófastólana (sem sést í neðst á myndinni) en hinir tveir (utan myndar) munu fara.

ps. Ekki láta gleiðlinsubjögunina blekkja ykkur, sófastólarnir eru jafn stórir!

Athugasemdir

Arnold - 29/07/08 23:34 #

Massaflott sett. Er þetta Tolli á vegnum til vinstri?

Eggert - 30/07/08 20:38 #

Gangi glæpalýðnum vel að drösla þessum stólum út!

Matti - 31/07/08 11:19 #

Sérstaklega þar sem taka þurfti fætur undan stólum og garðdyrnar af hjörum til að koma stólunum inn :-)