Vantrú birtir í dag lista yfir tekjur nokkurra aðila í hindurvitnabransanum.
Það vekur athygli mína hvað miðlarnir eru með lágar tekjur þrátt fyrir að einkatímar kosti sitt og biðtími sé í sumum tilvikum margir mánuðir.
Mjög gott framtak!
Mér finnst það eiginlega ergilegt að þessi listi virðist frekar sýna fram á að miðlar eru jafn óheiðarlegir við skattinn og þeir eru við viðskiptavini/fórnarlömb sín.
Ég verð að játa að ég var að vonast til þess að það kæmi í ljós að þeir mokuðu peningum af sakleysingjunum. Kjáni ég að halda að atvinnulygarar teldu rétt fram.
Mjög áhugavert að sjá "vinkonu mína" í næstefsta sæti.
Ekki merkileg laun í þessum geira. Þetta hlýtur að vera hugsjón!
Já, þetta hlýtur að vera hugsjónastarf. Mér dettur ekki í hug að halda að eitthvað af þessu fólki sé að svíkja skattinn eða að þiggja bætur úr kerfinu án þess að eiga rétt á því!
|
www.flickr.com
|