Örvitinn

Afstæði tímans

Um daginn sótti ég crack til að geta spilað Civ4 án DVD disksins, diskurinn minn skemmdist fyrir all nokkru og ég hef því ekki getað spilað leikinn. Í gærkvöldi tók ég smá session og áður en ég vissi af höfðu tveir klukkutímar liðið í raunheimum. Ef ekki hefði verið fyrir sjónvarpsþátt sem við hjónin ætluðum að horfa á saman hefði ég eflaust spilað fram á nótt. Reyndar hætti ég án þess að vista vegna þess að ég var fúll með stöðu mála, það hefur stundum gerst áður. Þarf að byrja aftur frá byrjun næst.

tölvuleikir
Athugasemdir

Ásgeir - 13/08/08 15:48 #

Frábær leikur. Eyðilagði næstum fyrir mér háskólanámið.

Matti - 13/08/08 16:01 #

Nákvæmlega, þetta er stórhættulegur leikur.