Örvitinn

Matarharmleikur

Ég var að panta borð á Austur Indía fjelaginu og sá að khajur-lamb er ekki lengur á matseðlinum.

Ég trúi því varla að þau geri mér þetta því rétturinn hefur áður horfið af matseðlinum en var komin aftur síðast þegar ég fór þangað. Reyndar komið meira en ár síðan ég fór síðast. Vissulega eru allir réttirnir á þessum stað yndislegir en Khajur-lambið er yndislegast.

Hringi í kvöld og athuga hvort þau geti ekki reddað þessum rétti á föstudagskvöld, annað væri tragedía!

Ég þarf að komast yfir uppskriftina og útbúa tandoori ofn í eldhúsinu.

matur
Athugasemdir

Sirrý - 21/08/08 08:49 #

Hvernig er það gátu þið reddað þessu með matin ? ég æltaði einmitt að panta mér þetta þegar ég fór í Janúar en þá var þetta ekki á matseðlinum. Eru komin 11 ár á morgun ?

Matti - 21/08/08 08:54 #

Tíu ár. Ég gleymdi að hringja, ætla að tékka á þeim seinnipartinn.