Ekki er nóg með að ég hafi eignast eina full frame myndavél heldur fékk ég aðra lánaða.
Ásmundur og Harpa eiga þessa Nikon N5005 vél. Með vélinni fylgdi quantaray 35-80 linsa sem ég geri ekki ráð fyrir að nota mikið en hún passar þó á D700 og þessi mynd er tekin með henni.
Keypti eina kodak litfilmu og ætla að taka nokkra ramma á næstunni. Tók eina mynd í kvöld. tími varla að smella af :-) Þess má geta að ég kann ekkert á þessa vél og hef engar leiðbeiningar. Held ég hafi þó fattað hvernig ég set vélina í ljósopsstillingu - en það kemur í ljós þegar ég læt framkalla filmuna. Svo er bara spurning hvort ég þori að kaupa svarthvíta filmu og framkalla sjálfur.
ps. Mynd af svartri myndvél á stofuborði tekin á iso3600 og maður er ekkert að spá í því!
Það er geggjað að nota svarthvíta filmu! Á reyndar eftir að læra að framkalla sjálfur en það er næst á dagskrá því ég ætti að komast í myrkraherbergi hjá ljósmyndaklúbbnum hér.
Hvaða litfilmu fékkstu þér annars?
3600 ISO? Sheeeeeeeeit!
Þetta var bara einhver Kodak litfilma sem hann átti til í Fótoval, það eina sem þar var til.
Fyrst þú færð ekkert grain lengur með digital gætirðu skellt þá á Fuji Superia 1600 ef þig langar að taka í lit. Geggjað grain í henni. Ég hef sýnishorn fyrir þig.
3600 ! Yikes.
Má bjóða ykkur iso 5600 með töluverðum kúrfum sem juku noise nokkuð. Myndin er minnkuð og skerpt en fjandakornið, þetta er bara skemmtilegt.
Inga María kom semsagt niður í kvöld og svaf í sófanum meðan sjónvarpsþátturinn kláraðist. Ég bara hana svo upp.
Sjálfur er ég andvaka, búinn að gera tilraun til að sofna.
|
www.flickr.com
|