Örvitinn

Gestgjafinn kvaddur

Rétt í þessu hringdi ég í Birting og sagði upp áskriftinni að Gestgjafanum.

Það er nokkuð langt síðan ég tók þessa ákvörðun en ég hef gleymt að hringja. Ég var áskrifandi að blaðinu sem áhugamaður um matargerð en ekki vegna þess að ég vildi fá innsýn í brúðkaup fína og fræga fólksins. Því miður finnst mér blaðið hafa verið að færa sig meira yfir á Séð og heyrt línuna og þegar ég fletti nýjasta blaðinu í gær fékk ég nóg!

Ég mun alveg örugglega kaupa jólablaðið og grillblaðið en annarra mun ég ekki sakna mikið. Fjárfesti frekar í matreiðslubókum.

fjölmiðlar matur
Athugasemdir

Mummi - 16/09/08 12:25 #

Sammála með síðasta blað, þetta var alls ekki að gera sig. Því miður.

Ég er nú ekki búinn að segja áskriftinni upp ennþá en ég hef ekki mikla þolinmæði í svona stemmningu. Það bara hlýtur að vera hægt að vera með matarblað sem kemur út einu sinni á mánuði. Ef ekki..

Valdís - 17/02/09 00:00 #

Mikið er ég sammála... ég held að ég hafi sagt upp áskriftinni minni á sama tíma eftir áskrift í 7 ár samfleytt. Það var líka alveg kolvitlaus stefna hjá þeim að fjölga blöðunum fyrst úr 12 í 16 og svo núna á þriggja vikna fresti eða um 17 blöð á ári og hækka áskriftarverðið í leiðinni. Nú notar maður bara netið meira.