Örvitinn

Múlbindum innheimtufyrirtæki

Setjum lög á hrægamma strax í dag. Það verður að koma í veg fyrir að innheimtufyrirtæki og lögmenn maki krókinn í kreppunni. Það á einfaldlega að lögbinda hógværar hámarksupphæðir sem þessi fyrirtæki mega rukka fyrir að ljósrita blöð, setja í póst og mæta fyrir dómstóla. Ég myndi jafnvel vilja ganga svo langt að ríkisvæða þennan bransa, hafa þetta alfarið í höndum opinberra aðila. Veit ekki hvort einkaaðilum sé treystandi til að sinna þessu. Græðgin er of sterk.

Hrægammur

pólitík