Ég gleymdi alveg að segja frá því að ég fékk almennilega Biblíu í jólagjöf. Ólíkt frægu Biblíunni er ekkert nema fegurð í þessari, engar formælingar, bölbænir, fjöldamorð og perraskapur.
Gjöfin kom ekkert rosalega á óvart þar sem ég hafði pantað hana.
Gyða gaf mér semsagt Silfurskeiðina, biblíu ítalskrar matargerðar. Það er afskaplega flott bók sem ég hef horft á í mörg ár. Stóðst ekki mátið þegar hún kom út á íslensku.
Margt í þessari biblíu sem ég á eftir að prófa. Það verður eitthvað um ítalskan mat á boðstólnum á næsta ári.
|
www.flickr.com
|