Ómögulegir mótmælendur
Það er ómögulegt að mótmælendur séu að mótmæla. Sérstaklega þegar þeir gera það upphátt.
Af hverju geta þeir ekki verið heima hjá sér og horft á Kryddsíld.
Smáborgarinn
(það segir ýmislegt um hve hófsöm mótmæli eru hér á landi þegar það þykir jaðra við hryðjuverk að stöðva tilgangslausa sjónvarpsútsendingu)
Athugasemdir
Óli Gneisti - 31/12/08 15:40 #
Það er nú samt eiginlega verst að fulltrúar handboltalandsliðsins komust ekki í útsendingu.