Örvitinn

Minniskortið fannst

Hafið ekki áhyggjur, hörmungum hefur verið afstýrt. Minniskortið fannst og lesarinn með. Lá í sófanum í sjónvarpsstofunni undir lúmsku hvítu A4 blaði. Fjandans ósvífna blað. Ég var búinn að snúa öllu við, líka í sjónvarpsstofunni. Gyða fann þetta að sjálfsögðu. Konur eru klárari að leita en karlar (tja, mín er a.m.k. klárari að leita en ég).

Ég mun taka heilan helling af myndum í kvöld. Vonandi eina sæmilega flugeldamynd.

dagbók
Athugasemdir

Carlos - 31/12/08 17:57 #

Hjúkk, má ég þá fara að draga andann?

Biddu hana Gyðu að hjálpa þér að finna vitið, þá sjáum við væntanlega fram á endi kreppunnar!

Matti - 31/12/08 18:00 #

Gyða er góð í að finna hluti en hún gerir ekki kraftaverk :-)

Arnold - 01/01/09 01:41 #

Þetta er öfugt á mínu heimili, þar finnur konan aldrei neitt :)