Örvitinn

Ömurð

Horfði á seinni hálfleik í viðureign Liverpool og Stoke áðan, missti af fyrri hálfleik þar sem ég var að spila fótbolta. Þetta var hrikalegt, það allra versta sem ég hef séð í langan tíma. Liverpool hefði getað stolið stigunum á lokamínútunni en það hefði varla verið sanngjarnt. Stoke er ömurlegt lið en þeir voru betri en Liverpool í þessum leik.

2 stig af 6 á móti Stoke á tímabilinu. Skelfilegt.

Ég verð óskaplega pirraður af því að horfa á svona fótboltaleiki. Er eiginlega ekki enn búinn að jafna mig.

boltinn