Örvitinn

Nýir eigendur

Gleymum kreppunni á Íslandi í smá stund. Mikið óskaplega vona ég að Liverpool fái nýja eigendur. Þessir kanar sem keyptu klúbbinn eru algjörlega glataðir. Ekki nóg með að þeir eigi enga aura heldur hafa þeir hvorki áhuga né vit á fótbolta.

Samt er ég ekki að vona eftir einhverju City dæmi, mér finnst það of mikið af því góða, en það væri gott ef Liverpool gæti keppt við United og Chelsea á leikmannamarkaðnum.

boltinn