Það er rétt hjá Ómari, þetta voru þannig fréttir að fólk mun muna eftir því hvar það var statt.
Ég var á bílastæði McDonalds í Faxaveni á leið í Thai Matstofuna með Steina. Vorum að koma úr fótbolta. Ég var að leggja bílnum þegar við heyrðum minnst á illkynja krabbamein, áttuðum okkur ekki á því strax hvort Geir væri að tala um sjálfan sig eða Ingibjörgu. Við sátum í bílnum og hlustuðum á Geir til enda. Veltum fyrir okkur stemmingunni meðal mótmælenda sem eflaust hefðu fagnað fréttum um kosningar ef ekki væri fyrir fréttirnar sem fylgdu með.
Í Thai matstofunni ræddum málið við starfsmann og kúnna. Stórfréttir sameina fólk sem þekkist ekki neitt. Spjölluðum um ástandið, kosningar og mótmæli.
|
www.flickr.com
|