Örvitinn

Leikurinn í gær

Þetta var nú meiri rússibaninn í gær. Ég horfði á seinni hálfleik, var í fótbolta þegar fyrri hálfleikur fór fram. Babel með klúður ársins og Portsmouth skoraði skömmu síðar með marki sem var á mörkum þess að vera rangstæða. Liverpool jafnaði og svo skoraði Kuyt mark sem ranglega var dæmt af (ef hann var rangstæður, þá var mark Portsmouth rangstæða). Að sjálfsögðu skoraði Hermann Hreiðarsson svo skömmu eftir það. En þetta endaði vel og ég trylltist af fögnuði þegar Torres skoraði sigurmarkið. Svona á fótboltaglápið að vera!

boltinn