Örvitinn

Stanslaust stuð

Gyða er veik. Fór í vinnuna í gær en varð fljótt slöpp, endaði daginn hjá lækni og fékk sýklalyf. Var komin með góðan hita þegar hún kom heim. Þegar leið á kvöldið fékk hún svo ælupest og niðurgang. Stanslaust stuð í Bakkaseli!

Ég hef sloppið að mestu við allar pestir, vona að það endist.

prívat