Örvitinn

Árni Johnsen

Samansafnaður fáviti?

Nei, spáið aðeins í þessu. Maðurinn fær bjúg í kringum jól og áramót - eflaust vegna þess að hann át yfir sig af reyktu og söltu kjöti. Dregur þá ályktun að það hafi verið eitrað fyrir honum og fer í því og lætur Jónínu spúla á sér þarmana í Póllandi.

Hvað segir það um þjóðina að þessi maður sitji enn á þingi? Erum við samansafn fávita?

kvabb
Athugasemdir

Lalli - 20/02/09 21:26 #

Mér finnst það nánast óþolandi að þessi þjófótti hjassi er enn á þingi. Eins vitlaus, óheiðarlegur og spilltur eins og mannhelvítið er. Hefur aldrei skammast sín eða jafnvel látið svo lítið sem að biðjast afsökunar á glæpum sínum.

Sindri Guðjónsson - 21/02/09 01:20 #

Faðir minn (þessi sem réðst að þér og tók í nefið á þér um áramótin), hætti við að kjósa Sjálfstæðisflokkinn síðast, bara út af því að Árni Johnsen var í framboði fyrir flokkinn.

Siggi - 21/02/09 21:54 #

Án þess að ætla að tjá mig mikið um téðan Árna sem ég hef ekki mikla trú á þá lenti ég á samkomu/fundi fyrir tveimur-þremur árum síðan þar sem hann var gestur og heilsaði honum með handabandi og tók eftir því að hendurnar á honum voru mjög óeðlilegar. Nánast eins og uppþvottahanskar, fylltir af vatni. Minnti helst á teikinmyndafígúru og get ég ímyndað mér að þetta hafi verið óþægilegt.

Spurði ég nærstaddan sem kannaðist við Árna um þetta og sá sagði að það væri búið að skoða þetta af læknum talið að um einhverskonar eituráhrif eða ofnæmi væri að ræða en ekki fundist nákvæmar út hvað.

Hann er því búinn klást við þetta í nokkur ár burtséð frá því hvort Jónína hefur náð að soga þetta úr honum :)