Örvitinn

Afturgöngur, endurfundir, hola, Flóki og Errókubbar

Heimsóttum Þjóðminjasafnið í dag til að sjá sýninguna Afturgöngur og afskipti af sannleikanum. Ágætar myndir en ég varð samt fyrir vonbrigðum. Myndirnar voru fáar, alltof einhæfar og efnistök sýningar frekar óspennandi. Það er óþarfi að endurtaka það nokkrum sinnum á veggtexta að maður þurfti að varast að draga ályktanir og það hlýtur að vera hægt að segja áhugaverða sögu um þetta efni.

Endurfundir á jarðhæðinni var töluvert áhugaverðari.

Kolla og Inga María raða ErrókubbumKíktum svo í Listasafn Reykjavíkur, skoðuðum holu (æi, ljótt og tilgerðarlegt) og sýninguna Skuggadrengur um Alfreð Flóka. Skemmtilegar teikningar, kannski full klámfengnar fyrir stelpurnar (eða foreldrana) en þær skoðuðu þetta af áhuga.

Errókubbarnir vöktu mesta lukku og stelpurnar dunduðu sér við að raða þeim saman í málverk. Skemmtu sér svo við að snúa þeim. Ég stalst til að taka mynd þó það sé eflaust stranglega bannað.

Borðuðum kvöldmatinn snemma og enduðum menningardag á Shalimar þar sem ég fékk mér Vindaloo. Afar gott. Ég á alltaf eftir að heimsækja Shalimar og fá mér sterkustu útgáfuna af Vindaloo (og fullt af bjór með).

menning