Örvitinn

Ég eyði ekki athugasemdum

Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég eyði nær aldrei athugasemdum af þessari síðu, jafnvel ekki þó verið sé að drulla yfir mig eða senda inn athugasemdir undir fölsku nafni og póstfangi. Fyrir kemur að ég færi athugasemdir og ég fjarlægi að sjálfsögðu allt spam.

Á tímabili var villa á síðunni sem olli því að athugasemdarform birtist við gamlar færslur þó lokað hefði verið fyrir athugasemdir við þær. Í þeim tilvikum kom væntanlega upp villa ef fólk reyndi að gera athugasemd.

Ef þú kommentar og athugasemdin sést við færsluna er hún komin inn, annars ekki. Ef einhver melding birtist hefur athugasemdin ekki skilað sér. Ef ruslsýjan grípur athugasemdina á að koma melding um það. Ég kíki af og til yfir allan póst sem hefur verið merktur sem rusl, það er afar sjaldgjæft að eðlilegar athugasemdir séu þannig merktar en gerist þó.

Ef ykkur gengur illa að kommenta, sendið mér þá línu og ég skoða málið. Ekki draga þá röngu ályktun að ég sé að ritskoða síðuna.

vefmál