Krepputilboð Pizza Hut
Systir mín geymdi þessi tilboð frá Pizza Hut og sýndi mér fyrir nokkru.
Fyrra tilboðið sem er hér hægra megin er frá september í fyrra. Tilboðið er til Einkakorthafa og er upp á 3.490.- fyrir fjölskyldupakka handa fjórum.
Tilboðið fyrir neðan er frá desember. Það var sent til e-korthafa og þar er sami fjölskyldupakki og í fyrra tilboði. Þetta tilboð er aftur á móti upp á 6.000.- krónur eða 2.510.- krónum hærra en tilboð Einkakortshafa í septemer.
Annað hvort varð ansi svakaleg hækkun hjá Pizzahut á þessum tíma eða Einkakortshafar fengu rosalega fínt tilboð í september.
Þið getið smellt á myndirnar til að sjá stærri útgáfur.
Athugasemdir
Andri - 16/03/09 22:27 #
Hvað kostar pakkinn eiginlega án Einka- eða e-korts? 10.000 kall?