Örvitinn

Mansal og nektardans

Hefur virkilega vantað löggjöf á Íslandi til að koma í veg fyrir að fólk sé flutt hingað nauðugt og haldið í þrælavinnu?

Hefur það verið löglegt hingað til? Hafa glæpagengi getað vísað lögreglu frá vegna þess að ekkert bannar þetta?

Snýst þetta kannski í rauninni um nektardans en ekki mansal? Er mansalið í raun yfirskin til að banna nektina og perraklámið?

(er hægt að vera með hærra hlutfall spurninga í bloggfærslu?

feminismi klám
Athugasemdir

Arngrímur - 18/03/09 14:05 #

Er málið ekki bara það að löggjöfin er vita máttlaus einsog er? Skýrslur hafa verið gerðar sem sýna fram á að vændi fer fram inni á þessum stöðum en það hefur hingað til verið nær engin leið til að stöðva það. Og það held ég að sé fyrst og fremst málið.

Matti - 18/03/09 14:08 #

Vændi er eitt og mansal annað. Ég hef fyrst og fremst heyrt talað um mansal í þessu samhengi.

Ég skil vel að löggjöf um bann við kaup á vændi sé sett til að koma í veg fyrir vændi (ef það er markmiðið), en ég sé ekki alveg þörfina á lagasetningu til að koma í veg fyrir mansal.

Finnst þetta dálítið eins og að setja löggjöf til að koma í veg fyrir að fólk sé myrt með hamri.

Magnús T - 18/03/09 20:07 #

Tja, það virðist ekki hægt að refsa mönnum fyrir viðurkennt margra ára samsæri um að stela frá þjóðinni (olíusamráðið) eða svo geðveikislega sjálftöku að þjóðin fer beinlínis á hausinn (bankahrunið), þannig að það er sennilega best að gefa sér sem minnst í þeim efnum hvað er bannað og refsivert og hvað ekki.

Kristján Hrannar - 18/03/09 23:47 #

Er þetta ekki vegna þess hve núverandi löggjöf er óskýr? Það hefur oft verið sýnt fram á tengsl vændis við mansal (mér finnst þetta svipað og tengsl "heimilisþræla" og þrælahalds) og að þetta sé upp á prinsippið að auki?

Matti - 19/03/09 08:16 #

Eru dæmi þess að ekki hafi verið hægt að ákæra eða dæma menn hér á landi fyrir mansal vegna skorts á löggjöf?

Sindri Guðjónsson - 19/03/09 09:22 #

Núverandi löggjöf er ekkert óskýr þegar kemur að mannsali. Það er bannað, og ekki einn einasti vafi eða óskýrleiki þar um.