Örvitinn

Fulham - Liverpool

Ég er úrvinda eftir að horfa á þennan leik, þvílíkur rússibani. Liverpool hreinlega óð yfir Fulhan en gekk ekkert að skora, hittu tréverkið fjórum sinnum í fyrri hálfleik og áttu nokkur dauðafæri í þeim seinni þar til sigurmarkið komi loks í umframtíma. Ég hreinlega ærðist af fögnuði. Þarf smá tíma til að jafna mig eftir þetta.

Leikskýrsla Liverpool bloggsins er væntanleg, ég ætla að fara að flakka um vefinn að lesa um leikinn eins og ég geri alltaf eftir leiki.

boltinn