Örvitinn

Vantrúarbingó á morgun

Ég minni á bingó Vantrúar á Austurvelli kl. 12:30 á morgun. Veðurspáin er fín, smá vindur og engin úrkoma.

Eins og flestir vita er bannað að spila bingó föstudaginn langa. Þess vegna erum við að þessu. Hver veit, kannski verður alvöru trúfrelsi í Nýja Íslandi og fólki ekki mismunað vegna lífsskoðana. Ég get a.m.k. látið mig dreyma :-)

Bingó, kakó og kleinur. Mætið endilega og takið krakkana með.

kristni vísanir
Athugasemdir

Matti - 10/04/09 09:59 #

Endilega, veðrið er gott auk þess að kleinur og kakó virka vel við þynnku (ég var reyndar að skálda þetta). Mátt endilega heilsa upp á mig ef þú mætir (það gildir um ykkur öll).

Doktor Hasselblad - 10/04/09 17:17 #

Ertu ekki með myndir frá bingó'inu?

Matti - 10/04/09 17:54 #

Jú, ég tók einhverjar myndir en er ekki í aðstöðu til að vinna og uploada af viti eins og er.

Hér eru tvær.