Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á með 50% leiðinni sem ekki er þegar í boði gegnum bankana eða Íbúðalánasjóð með frystingu lána, frestun afborgana og greiðslujöfnun?

Þetta er það sem heitir á góðri íslensku 'að slá ryki í augu kjósenda'...
Sjálfstæðisflokkurinn er langt út á túni með þessa kosningabaráttu sína. Vona bara að fylgið þeirra verði ekki meira en kannanir sýna. Grunar samt að svo verði.
Þeir hafa náttúrulega nákvæmlega ekkert fram að færa og þeir vita það blessaðir. "Nýtum auðlindirnar". "Fleiri álver".
Maður hristir bara hausinn.
Veit ekki til þess að bankarnir bjóði þetta í svona langan tíma og held að það sé alls ekki verið að slá ryki í augu kjósenda!
Hvað bjóða bankarnir þetta til langs tíma? Það eru ýmsar útgáfur í boði hjá bönkunum.
Ég sé ekki af hverju bankar og Íbúðalánasjóður ættu ekki að geta boðið upp á eitthvað svipað þessu algjörlega óháð Sjálfstæðisflokknum.
|
www.flickr.com
|