Inga María skellti sér í bað í morgun áður en við röltum á kjörstað í Ölduselsskóla. Mér fannst hún svo krúttleg þegar hún var að þvo sér um hárið að ég skokkaði niður og sótti myndavélina.
Hver veit nema ég birti næst myndir af mér í baði.
Ég smellti einmitt á fyrirsögnina án þess að lesa hana, sá síðan hvað stóð þarna og varð dauðhræddur um að þarna yrði mynd af þér.
Ég á vin sem hringir í mig þegar hann er í baði... Það er ekki endilega til eftirbreytni
Ég sé að þú ert alveg hættur að nota flash. Undursamleg myndflaga finnst þér ekki?
Ég hringi aldrei í fólk þegar ég er í baði. Reyndar fer ég sjaldan í bað, er sturtumaður. Aftur á móti finnst mér afskaplega gaman að rabba í síma þegar ég er á klósettinu. Þegar ég spái í því, þá er ég reyndar ekkert rosalega mikill símamaður heldur.
Ég nota flassið af og til en sjaldan vegna þess að ekki sé næg birta. Hika ekki við að fara í iso3200 eins og á seinni myndinni, jafnvel töluvert hærra.
|
www.flickr.com
|