Örvitinn

Öfundssýki þeirra sem gagnrýna Þráin

Frábært þetta nýja Ísland. Þeir sem gera athugasemdir við að uppgjafar framsóknarmenn fái heiðurslaun og laun frá Alþingi á sama tíma og þjóðin er nær gjaldþrota eru samkvæmt útbrunnum og dæmdum ritstjórum bara öfundsjúkir óvildarmenn.

Gott ef þetta er ekki nákvæmlega sami frasi og notaður var um þá sem gagnrýndu útrásarvíkinga fyrir hrun.

Til hamingju með nýtt og miklu betra Ísland, þar sem umræðan er opin og heilagar kýr ekki til.

Ég vissi ekki að þetta snerist allt saman einungis um að koma nýju fólki inn í spillinguna.

dylgjublogg