Örvitinn

Nýju fötin hans Dalai Lama

Ég hló upphátt þegar ég las þetta í Fréttablaðinu (bls. 26) í morgun.

Dalai Lama

Fyrirlesturinn er klukkan þrjú á þriðjudaginn og stendur yfir í að minnsta kosti einn og hálfan tíma. Spurð um hvort erfitt sé að skilja ensku hans á fyrirlestrinum segir Þórhalla að mikilvægt sé að hlusta ekki aðeins með eyrunum. "Hann er með hreim og fólki finnst misjafnlega erfitt að skilja hann. En hann er ekki endilega að segja eitthvað allt annað en svo margir aðrir. Það sem er svo einstakt er að hlutirnir sem hann segir koma frá svo miklu dýpi og frá svo miklum óendanlegum skilningi að það er best að reyna að slaka á, leyfa sér að njóta andrúmsloftsins og leyfa skilningnum að koma.

Með öðrum orðum: Þó ykkur finnist Dalai Lama ekki vera að segja neitt merkilegt, þá er það rosalega merkilegt vegna þess að hann er svo rosalega merkilegur.

Svo brosti ég dálítið þegar ég las þetta.

Þegar Dalai Lama er sjálfur spurður út í hvað gerist í framtíðinni þá segir hann aðeins að hann heiti því að koma aftur á jörðina til þess að hjálpa mannkyninu, hvort sem hann verður aftur Dalai Lama eða einhver annar. Það er ótrúleg upplifun að sitja fyrir framan mann sem lofar manni af mikilli fullvissu að hann muni snúa aftur.

Það er lítið mál að lofa því að snúa aftur. Dálítið erfiðara að standa við það :-)

Mynd af Dalai Lama frá Jan Michael notuð skv. cc leyfi.

efahyggja
Athugasemdir

Matti - 31/05/09 17:13 #

Áhugaverð umfjöllun.

Dalai Lama: Stern, not Cuddly

I find it very interesting, but not at all surprising, that people project into the Dalai Lama whatever it is they want to see there. Don't people do much the same with Jesus and various other religious leaders? People embark on a search for the "historical Jesus" and end up finding whatever they want to find — whatever fits in well with their religious, political, and ideological preconceptions.

Many in the West clearly perceive the Dalai Lama as a spiritual figure who won't tell you 'no' and who is the antithesis of the orthodox portrayals of stern figures from Western religious history. Just as people tend to invest both Eastern and Western religious figures with their own needs and assumptions, perhaps the real Dalai Lama has more in common with Western religious leaders than people want to acknowledge.

Matti - 01/06/09 01:30 #

Afsakið, en hafið þið séð hvað kostar á fyrirlesturinn?

Af miði.is:

 02.06.09 - Þriðjudagur      15:00   Dalai Lama á Íslandi - UPPSELT    
Laugardalshöll F Dalai Lama á Íslandi    7.900 kr. / 5.900 kr. / 3.900 kr.