Vantar múrara
Við ætlum að drífa í viðgerð á húsinu í sumar og þurfum að fara að leita tilboða.
Hafið þið, lesendur góðir, látið gera við steypuskemmdir á húsi nýlega og voruð þið sátt við verkið? Ég held að besta leiðin til að finna góða aðila sé í gegnum fólkið sem þeir hafa unnið fyrir.
Verktakar mega einnig gjarnan hafa samband. Getið gert athugasemd hér, sent mér tölvupóst á matthias.asgeirsson@gmail.com eða hringt í síma 8600644.
Þetta snýst um nokkuð viðamikla viðgerð á raðhúsi (Bakkasel 19-23, 3 íbúðir, 3 hæðir) sem eflaust verður unnin í áföngum. Í fyrsta áfanga þarf að brjóta af múrhúð á gafli, gera við sprunguskemmdir og múra aftur yfir gaflinn. Auk þess þarf að gera við glugga á þeirri hlið. Þetta er fyrsti áfangi en svo þarf að gera við skemmdir á húsinu öllu.
Megið endilega benda mér á góða verktaka ef þið vitið um einhverja og ef þið eruð verktakar megið þið endilega hafa samband og gera tilboð í verkið.
Ásgeir - 31/05/09 20:49 #
Ég þekki góðan múrara sem vantar verkefni.
Ásgeir - 01/06/09 10:55 #
Ég nefni þetta við hann.