Ég hætti við að birta tvær pólitískar bloggfærslur. Nenni ekki að standa í þessu rugli. Fólk vill hávaða og pepp, ekki athugasemdir og spurningar. Gagnrýnin hugsun og umræða hentar ekki við þessar aðstæður.
Það er leitt, það er ólíkt skemmtilegra að lesa svoleiðis efni um pólitík heldur en það sem maður sér dags daglega.
Ert þú ekki Matti sem var formaður Vantrúar? Auðvitað hentar gagnrýnin hugsun og umræða við þessar aðstæður! Ef ekki núna, hvenær þá?
Mér finnst eiginlega að manni með jafn skarpan og greinandi hug sé ekki siðferðilega stætt á því að þegja við þessar aðstæður. Þú hefur nú hingað til verið til í að taka slaginn við bæði hugsjónafólk og röflara. Hví ekki nú?
Ef við þurfum eitthvað nú, þá er það skýr hugsun og flugbeitt gagnrýni. Skítt með vesenið.
Ef maður á að þurfa að skrifa fyrirvara með annarri hverri færslu þar sem fjölskyldutengsl eru dregin fram er eins gott að sleppa þessu.
Hvað haldið þið svo að ég sé að gera í staðin, meðan kjúklingurinn eldast á grillinu.
Reikna dæmi úr Calculus 9. útgáfu eftir Thomas og Finney.
Enn á fyrsta kafla.
Hvað þarf að gera til að fá þig til að hætta trúmálafærslum? :-)
Halldór, þú vilt varla þagga niður gagnrýna umræðu um trúmál? Þið trúmenn eruð varla svo aumir.
Hvað þarf að gera til að fá þig til að hætta trúmálafærslum? :-)
Leggja niður ríkiskirkjuna og leggja algjört bann við boðun hindurvitna.
Þá myndi ég hætta undir eins.
Ég vona að menn hafi ekki misst af broskallinum í fyrri ummælum. En án gamans ég held að sjaldan hafi verið meiri þörf á kjaftæðisvakt á Íslandi en einmitt núna, og þá er ég ekki bara að tala um á sviði trúmála og hindurvitna.
Það er fremur leitt að Matti hyggist skorast undan því.
|
www.flickr.com
|