Örvitinn

Fótboltagláp

Glápti á fyrsta ævingaleik Liverpool á þessu tímabili í gærkvöldi. Get ekki sagt að leikurinn hafi verið góð skemmtun en ég gat samt ekki misst af þessum leik. Fótboltagláp er nefnilega fíkn. Liverpoolgláp í mínu tilvki.

Liverpoolfréttir síðustu daga hafa ekki verið upplífgandi því þær snúast að mestu um að Xabi Alonso vilji fara til Real Madrid. Það væri agaleg blóðtaka fyrir liðið að missa Alonso. Það er misskilningur að Gerrard geti tekið stöðu hans á miðjunni. Hann á heima í holunni þar sem hann spilar núna, er í raun ekkert sérstakur miðjumaður.

boltinn