Bílastæðalógík
Jónas skrifar:
Þarf oft að fá bílastæði í miðbænum. Í sumar er allt í einu nóg af stæðum. Það stafar af auknu eftirliti. #
Ætli þetta hafi ekkert með það að gera að töluverður fjöldi bankamanna í miðbænum missti vinnuna? Mér þykir það sennilegri skýring. Auk þess er búið að malbika bílastæðin á Landsbankalóðinni. Aukið eftirlit er frekar langsótt skýring.
Ef hann var í bænum í dag bætist ofan á að ansi margir eru í sumarfríi um þessar mundir. Það er alltaf nóg af stæðum við vinnuna hjá mér þessa dagana, utan frítíma þarf maður oft að leggja dálítinn spöl frá vinnunni.
Jóhann - 22/07/09 21:58 #
Þetta er ótrúleg athugunarhæfni hjá þessum manni. Ég tók eftir þessari fækkun í nóvember.
Jóhannes Proppé - 23/07/09 00:52 #
Það er náttúrulega klárt ef að "fullur af skít" væri ólympíugrein þá væri Jónas að þjálfa landsliðið.