Örvitinn

Einkabarn

Kolla fór með Áróru í bíó í gærkvöldi að sjá Harry Potter. Inga María fékk ekki að fara með og því fór hún út að borða með foreldrum sínum í staðin, var einkabarn eina kvöldstund.

Hún fékk að velja veitingastað. Við vorum búin að sætta okkur við að hún myndi velja McDonalds en hún kom á óvart og sagðist vilja spagettí og kjötbollur. Það er í boði á Písa þannig að við skelltum okkur þangað.

Þær voru því báðar sáttar við kvöldið, Kolla eftir bíóferð og Inga María eftir kvöldstund með foreldrunum.

fjölskyldan