Örvitinn

Afhommun virkar ekki!

Ef einhverjir trúarnöttarar eru að búa sig undir Gaypride er kannski við hæfi að benda á að svo virðist sem afhommun virki ekki. Kemur ekki mikið á óvart.

Aftur á móti er ekki útilokað að hommun virki þannig að þeir sem eru viðkvæmir fyrir ættu að forðast miðbæinn næstu daga. Aldrei að vita nema einhverjum verði snúið til kynvillu, hún getur verið svo lúmsk.

Okkur finnst afhommun öfgatrúsöfnuða kannski dálítið skondin en staðreyndin er að hún hefur afleiðingar. Það er í raun furðulegt hvað öfgatrúsöfnuðir fá að komast upp með mikið rugl hér á landi, eins og t.d. áróður gegn samkynhneigð. Gildir þá engu hvort söfnuðurinn heitir Krossinn eða Þjóðkirkjan. Gunnar í Krossinum ætti náttúrulega að vera löngu farinn í steininn fyrir hatursáróður sinn og sumir kollegar hans eru ekki fyrr búnir að tala um ruslahauga fyrr en þeir eru mættir í fjölmiðla til að hreykja sér af því hvað þeir eru umburðarlyndi og ljúga því að þeir séu í fararbroddi. Svo ég vitni í Hörð Torfason:

Kirkjan er að mínu viti sú stofnun sem hefur barist einna hatrammast gegn okkur. Reyndar álít ég hana vera ábyrga fyrir því að ég hef þurft að ganga í gegnum allskonar niðurlægingu og höfnun og útskúfun í marga áratugum af því að ég vildi ekki hlýðast dyntum hennar og löggjafans sem studdi hana. Nú eru kirkjuentarnir í fýlu af því að klofningur er kominn upp og þeim er sagt að trénuð viðhorf þeirra sé ekki marktæk lengur. #

ps,. þessi bloggfærsla var bara skrifuð til að setja eitthvað gáfulegra (meira intelligent) en síðustu færslu á bloggið! Vísun á afhommunarfrétt sá ég á reddit, hvar annars staðar?

kristni